11.10.09

vetrarbrúðkaup


Þóra og Adam giftu sig á fallegum degi í nóvember í fyrra. Athöfnin fór fram í Dómkirkjunni og svo fórum við í Alþingisgarðinn í smá myndatöku þar sem veðrið var bara stórfínt miðað við árstíma.


Síðan fórum við í stúdíóið í fleiri myndir...



Þóra og Adam eignuðust sitt fyrsta barn í ágúst sl. Ég er svo heppin að fá að mynda þennan fallega dreng mánaðarlega fyrsta árið hans. Hann er búinn að koma til mín tvisvar og sýnishorn eiga eflaust eftir að koma hér á bloggið innan tíðar. Til lukku með þetta allt saman Þóra og Adam!