19.3.09

boudoir

Boudoir myndir eru einskonar sexí og sætar svefnherbergismyndir af konum. Myndirnar eru í raun meiri portrett myndir heldur en listrænu nektarmyndirnar mínar.


En þó er andlitið ekki endilega aðalatriðið og þetta fer algjörlega eftir óskum konunnar...

Konan mætir með fallegustu undirfötin sín og ýmislegt annað sniðugt...




Ef myndirnar eru hugsaðar sem gjöf handa makanum þá er alveg tilvalið að lauma skyrtu eða boxer nærbuxum af honum í töskuna sem fer með í myndatökuna! Eins er brúðarkjóllinn, slörið og brúðarundirfötin vinsæl, sérstaklega þegar um er að ræða morgungjöf eða brúðkaupsafmæli.


Ég mynda bæði í stúdíóinu og í heimahúsum, allt eftir óskum. Svo er mjög vinsælt að taka hárgreiðslu og förðun með í pakkann og það er allt gert á staðnum (af konu!).


(allar myndirnar eru birtar með góðfúslegu leyfi dömunnar!)