23.4.08

3ja mánaða snáði

Nú er Sigurður Arnar orðinn 3 mánaða og búinn að stækka heilmikið síðan síðast. Hann er orðinn meira forvitinn um umhverfið og var duglegur að stilla sér upp fyrir myndavélina - að vanda.




17.4.08

Erna Dagný

Erna Dagný fermist í Hveragerðiskirkju á sunnudaginn næstkomandi. Hún kom í myndatöku til mín snemma í apríl ásamt systur sinni og mömmu. Það er svo gaman að mynda svona brosmildar og fallegar dömur. Til hamingju Erna með fermingardaginn!

Þorbjörg Tinna er að verða 11 ára í maí:

Mæðgurnar:


3.4.08

Brynjar og Ellen Marta

Systkinin Brynjar og Ellen Marta komu til mín laugardaginn 29.mars í fermingarmyndatöku. Þau fermdust í Vídalínskirkju í Garðabæ seinna um daginn. Til hamingju með daginn!