25.6.08

Norður Írland - Króatía

Dorothy og Marko giftu sig í London um helgina og fengu mig til að mynda daginn. Dorothy er frænka mín frá Norður Írlandi og Marko er frá Króatíu en alinn upp mestmegnis í London. Athöfnin fór fram í kirkju nálægt Regent's Park og síðan var gengið gegnum garðinn og veisla haldin á veitingahúsi þar nálægt. Myndatakan af brúðhjónunum fór fram í Regent's Park.
Congratulations Dorothy and Marko if you manage to read this far!




12.6.08

Nekt og boudoir

S kom í listræna nektarmyndatöku til mín í maí. Hún Bella farðaði og greiddi dömunni á staðnum. Ég blandaði saman listrænum nektarmyndum og "boudoir" portrett myndum en S kom með falleg undirföt með sér fyrir þær.





Portrett myndirnar komu ótrúlega vel út enda flott kona með baby-blá augu og fallegt bros! Hér sést ekki í andlit S þannig að ég læt hana fljóta með:

Gyðju vörur

Sigrún Lilja hjá Gyðju Collection hefur fengið mig til að taka myndir af Gyðju vörunum. Það koma reglulega nýjar sendingar af vörum og í þetta skiptið voru þetta skór, töskur og belti. Glæsilegar vörur sem Sigrún hannar sjálf og selur á netinu www.gydja.is





4 mánaða

Sigurður Arnar varð 4 mánaða í maí og kom í sína mánaðarlegu myndatöku til mín. Hann verður bara flottari og flottari! Ég er farin að hlakka til að sjá lokaalbúmið í janúar :)



stúdent

Arna Sif kom til mín í maí en hún var að útskrifast úr Versló. Til hamingju með áfangann Arna!



Opnun í Gallerí Ágúst

Sigrún Sandra í Gallerí Ágúst réð mig til að mynda opnun sýningar Andreu Maack: SMART 16.maí sl. en sýningin var framlag gallerísins til Listahátíðar Reykjavíkur þetta árið. Meira um sýninguna og galleríið á www.galleriagust.is