25.3.08

brúðkaup og skírn

Ég myndaði brúðkaup og skírn í heimahúsi á pálmasunnudag. Brúðhjónin Sigurveig og Helgi létu gefa sig saman og skíra son sinn Sigurð Arnar. Sigurður er í mánaðarlegum myndatökum hjá mér og hann var tæplega 2 mánaða gamall þennan dag.





Til hamingju með daginn Sigurveig, Helgi og Sigurður Arnar ;)

4.3.08

Taka tvö - 6 vikna

Litli drengurinn sem kom til mín í janúar, hann Sigurður Arnar, ætlar að koma í mánaðarlegar myndatökur til mín þar til hann verður eins árs. Þetta er mjög spennandi verkefni og ofsalega gaman að fá að fylgjast svona vel með honum vaxa og dafna. Sigurður var 6 vikna á þessum myndum og kom í stúdíóið til mín:


Það er gaman að bera þessa saman við svipaða mynd í fyrstu tökunni þegar hann var 11 daga gamall:


3.3.08

Opnun laugardaginn 8.mars


Verið hjartanlega velkomin á opnun ljósmyndasýningar minnar í Fótógrafí á Skólavörðustíg 4 laugardaginn 8.mars kl.17. Léttar veitingar í boði og allir velkomnir. Hlakka til að sjá ykkur sem flest!