Sigrún Lilja á og rekur Gyðja Collection sem er glæsileg íslensk merkjavara, seld í netverslun á www.gydja.is. Það gengur ótrúlega vel hjá þessari gyðju enda þrusuklár kona. Takk fyrir skemmtilega myndatöku Sigrún ;)
Þessi fallega kona kom í listræna nektarmyndatöku til mín í apríl. Albúmið á sannarlega eftir að gleðja einn heppinn eiginmann! Myndirnar, eins og allar myndir á blogginu, eru að sjálfsögðu birtar með leyfi fyrirsætunnar.