21.2.08

Ljósmyndasýning

Ath. breytt dagsetning: Opnun sýningarinnar verður laugardaginn 8.mars! Nánari upplýsingar síðar.


Fyrsta einkasýning mín opnar laugardaginn 8.mars hjá Ara í Fótógrafí á Skólavörðustíg 4a. Ég er á fullu að prenta myndir í myrkri fyrir sýninguna en þetta er allt í góðum gír. Þetta verða allt saman nektarmyndir sem ég hef tekið undanfarin 5 ár. Myndirnar verða til sölu og sýningin verður a.m.k. út mars. Nánari tímasetning og upplýsingar síðar.

20.2.08

Gallerí Ágúst

Sigrún Sandra Ólafsdóttir rekur Gallerí Ágúst á Baldursgötu 12: http://www.galleriagust.is/.
Þetta er nýtt metnaðarfullt myndlistargallerí með áherslu á samtímamyndlist.

Ég myndaði Sigrúnu og sýningu Davíðs Arnar Halldórssonar í galleríinu um daginn.


1.2.08

Alveg nýr

Sigurður Arnar fæddist 18.janúar og er því bara 11 daga gamall á þessum myndum. Fyrsta barn stoltra foreldra og afburðagott módel. Myndirnar eru teknar heima hjá fjölskyldunni.